FAB Travel

FAB Travel

Gullni Hringurinn 685

Þjónusta FAB Travel

Rútur
Við hjá FAB Travel gerum tilboð í hópferðir  og rútuferðir af ýmsum toga. Við bjóðum upp á úrvals rútur sem taka allt frá 8 og upp í 48 farþega. Rúturnar eru vel útbúnar en hér má finna frekari upplýsingar um rúturnar okkar. 

Nánari upplýsingar og óskir um bókanir og tilboð í síma 5712282 og á fabtravel@fabtravel.is


Frí bókunarþjónusta
FAB Travel er í samstarfi við rúmlega 50 fyrirtæki og aðila  á Norðurlandi sem bjóða upp á ýmsa möguleika tengda ferðaþjónustu. Við skipuleggjum hópferðir í samstarfi við þig og sjáum um að bóka allann pakkann fyrir þig. Hvort sem fyrir valinu verður rúta, flug eða bílaleigubíll þá hafðu samband í síma 5712282 eða á fabtravel@fabtravel.is og við bókum eftir þínum óskum. Við bjóðum einnig uppá fjölmarga gistimöguleika,  matsölustaði , skemmtun og afþreyingu og sjáum um að bóka fyrir þig án endurgjalds. Hér má fletta handbók FAB Travel þar sem allir okkar samstarfsaðilar eru kynntir.


Fréttir

Síldarminjasafnið eignast Slippinn á Siglufirði.

Slippurinn, eikarbáturinn Daníel og dráttarbrautin
Einn af samstarfsaðilum FAB Travel, Síldarminjasafnið á Siglufirði, hefur eignast Slippinn á Siglufirði. Starfsmenn Síldarminjasafnsins hafa unnið að árabátasmíði í Slippnum síðan 2009 og hafið endurbætur á húsinu. Þar verður í senn sögusýning fyrir safngesti og stundaðar bátasmíðar og viðgerðir eldri báta. Lesa meira

Páskar á næsta leiti, skíðatímabilið fyrir norðan.

Ertu að fara á skíði fyrir norðan? Af hverju ekki að skilja bílinn heima og láta aðra um að keyra þig? Bjóðum hópum, minnst sex manna, upp á ýmsa valmöguleika með það í huga að allir í hópnum geti notið sín um páskana. Hafið samband og við gerum ykkur tilboð, fabravel@fabtravel.is. 

Fundur samstarfsaðila og FAB Travel.

FAB Travel vinnur nú hörðum höndum að koma saman nýrri handbók fyrir árið 2012-2013. Að auki mun heimasíða fyrirtækisins vera uppfærð og á hana sett bókunarvél. Fyrirtækið hélt fund ásamt öðrum ferðaþjónustuaðilum um ósk um samstarf við þá og hvaða þjónustu FAB Travel veitir í staðinn. Sigurbjörg framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Auður og Þröstur sem vinna að markaðsmálum kynntu fyrir hópnum starfsemi fyrirtækisins, og að samstarf í huga FAB Travel er að allir leggji sitt af mörkum til að koma okkur öllum á framfæri. M.a. var nefnt að koma á sérstöku markaðsráði ,sem yrði samsett af samstarfsaðilum og það ynni ásamt markaðsdeild fyrirtækisins með hugmyndavinnu um markaðssetningu. Aðilar innan sömu svæða tækju sig til og settu upp ferðir sem FAB Travel myndi selja og ferja ferðamennina til svæðisins. Enda er FAB Travel fyrst og fresmt rútufyrirtæki sem hefur það að markmiði að ferja ferðamenn á áhugaverða staði og til áhugaverðra ferðaþjónustuaðila. FAB Travel einblínir á ALLT norðurland í sínu starfi og óskar eftir samstarfi við ALLA ferðaþjónustaðila á norðurlandi sem hafa áhuga á að ganga til liðs við fyrirtækið. Fyrir þá sem hafa áhuga á frekari upplýsingum um þetta samstarf er tölvupóstfangið: fabtravel@fabtravel.is. Ferðaþjónustuaðilar norðurlands, endilega sendið okkur línu.

Samræðufundur FAB Travel og samstarfsaðila 13. feb. kl. 10.00

FAB Travel hefur sent samstarfsaðilum sínum boð á samræðufund þann 13. febrúar nk. kl. 10.00. FAB Travel hvetur alla aðila sem eitthvað hafa með ferðaþjónustu að gera, og hafa áhuga á samstarfi við okkur að mæta á fundinn á skrifstofu fyrirtækisins að Strandgötu 49, 2. hæð. 
FAB Travel er fyrst og fremst rútufyrirtæki, sem hefur að markmiði að selja og koma ferðamönnum á áhugaverða staði og til aðila sem bjóða áhugaverða þjónustu á norðurlandi. Þeir sem áhuga hafa á að vera í samstarfi við okkur og/eða langar til að forvitnast meira um starfsemi okkar eru velkomnir á samræðufundinn. Vinsamlegast látið vita af þátttöku ykkar með tölvupósti á netfangið fabtravel@fabtravel.is í síðasta lagi föstudaginn 10. febrúar.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf